SONAX er framsækið fyrirtæki í framleiðslu og sölu á efnavörum fyrir almenna notendur, fyrirtæki, bónstöðvar sem og fyrir tæknivæddar bílaþvottastöðvar.
Undir vörumerkinu SONAX býður fyrirtækið uppá breitt vöruúrval af samkeppnishæfum vörum til þrifa og viðhalds á farartækjum. Með háum gæðum og verðstefnu í takt við þau leitast SONAX við að bjóða uppá stöðugar nýjungar og að framleiða vörur sem eru umhverfisvænar.
SONAX er þekkt vörumerki víða og eru vörur undir SONAX vörumerkinu seldar í 69 löndum.
Upphaf SONAX
Árið 1903 kom Franz Hoffman á laggirnar kísilverksmiðju, á þeim tíma var kísill aðallega notaður til að fægja málma.
Árið 1924 fer fyrirtækið, Franz Hoffman & Söhne, í samstarf við Reckitt & Colman sem var þá stærsti framleiðandi bónvara. Þetta samstarf helst enn í dag. Einnig opnaði fyrirtækið leið sína að gúmmíiðnaðinum.
Í kringum árið 1950 hóf fyrirtækið svo framleiðslu á þýska vörumerkinu SONAX sem í dag er leiðandi hreinsivara í að viðhalda farartækjum.
Í dag eru fyrirtækin SONAX og Hoffman Mineral dótturfyrirtæki Hoffman Group, sem var áður Franz Hoffman & Söhne. Vinnur Hoffman Mineral að því að rannsaka og vinna efni í náttúrunni sem að fyrirtækið SONAX notar svo í framleiðslu á hágæða vörum til hreinsunar og umhirðu á farartækjum.
SONAX og umhverfið
Öllum ferlum í fyrirtækinu er stjórnað með umhverfisvæn sjónarmið í huga og allar vörur eru framleiddar eða betrumbættar í sátt við auðlindir náttúrunnar. SONAX hefur innleitt og notar ISO 9001:2000 gæðakerfið í rannsóknum, þróun, framleiðslu og sölu.
Rannsóknir og þróun
Þarfir og kröfur notenda eru alltaf hafðar að leiðarljósi við vöruþróun hjá SONAX og því er stöðugt verið að þróa lausnir í hæsta gæðaflokki, byggðar á nýstárlegum rannsóknum og 50 ára reynslu.
Styrktaraðilar
Í gegnum tíðina hefur SONAX verið styrktaraðili ýmissa akstursíþrótta víðsvegar í heiminum og hefur undanfarin ár styrkt keppnislið í Formúlu 1 og er nú styrktaraðili McLaren liðsins.
SONAX og umboðsaðili vörumerkisins á Íslandi, Ásbjörn Ólafsson ehf., hafa styrkt ýmsar akstursíþróttir í gegnum tíðina, svo sem rallý, torfæru, kart, mótocross, sleðakeppnir og fleira.
SONAX á Íslandi
SONAX hefur verið á íslenskum markaði í um 30 ár og er leiðandi vörumerki á sínu sviði. Mest selda bílabón á Íslandi í áraraðir, SONAX Hard Wax, er sérblandað fyrir Ísland. Aðstæður á íslenska markaðnum og óskir íslenskra neytenda voru hafðar í huga við þá vöruþróun. Við Íslendingar erum kröfuharðir þegar kemur að bílabóni og bílaþrifum og SONAX vörurnar standast okkar kröfur!
|